Vefþing um orkuskipti í landbúnaði, sem haldið var í gær, 9. apríl, tókst einstaklega vel. Um 70 manns sóttu þingið og sýnir sá fjöldi glögglega þann mikla áhuga og þörf sem ríkir innan greinarinnar fyrir fræðslu og umræðu um orkuskipti.
Vefþingið var samstarfsverkefni Eims og Orkídeu og hluti af Evrópuverkefnunum RECET og Value4Farm. Sjónum var beint að stöðu og framtíð orkuskipta í einni af lykilgreinum íslensks samfélags og atvinnulífs, með það að markmiði að varpa ljósi á tækifæri til aukins orkusjálfstæðis í landbúnaði.
Raunhæfar lausnir fyrir íslenska bændur
Á þinginu var fjallað um fjölbreyttar tæknilausnir sem þegar eru farnar að líta dagsins ljós og var sérstök áhersla lögð á rafmagns- og metanvæðingu landbúnaðartækja. Í því samhengi var kynnt reynsla af notkun metanknúinna dráttarvéla, meðal annars hjá SORPU, ásamt því að rýnt var í hvernig rafvæðing getur nýst á búum landsins. Jafnframt var sjónum beint að framleiðslu og nýtingu metans þar sem skoðað var hvernig bændur geta sjálfir gerst framleiðendur eigin orku og hvernig metan nýtist sem framtíðarorkugjafi í sveitum.
Raunsæi og samstaða um framtíðina
Í öllum erindum og umræðum dagsins var lögð mikil áhersla á að horfa á hlutina af raunsæi og skilja þann raunveruleika sem bændur búa við í dag. Það er skýrt að orkuskipti eru stórt samfélagslegt verkefni sem snertir okkur öll. Orkuskipti snúast um fæðuöryggi til framtíðar, sjálfbærni og að íslenskur landbúnaður standi áfram sterkur.
Takk fyrir þátttökuna
Við hjá Eimi og Orkídeu viljum þakka fyrirlesurum kærlega fyrir þeirra dýrmæta framlag og öllum þeim sem sóttu þingið með okkur. Þessi góði áhugi gefur okkur mikinn byr í seglin og hvetur okkur til að halda áfram að styðja þétt við bakið á bændum og frumkvöðlum á leiðinni að grænni og sjálfstæðari orkuframtíð.