29. janúar 2025

Netviðburður um þróun til sjálfbærra og hringlaga hagkerfa

Mynd: Enterprise Europe Network, Up2Circk, ESB

Orkídea bendir áhugasömum á viðburð á vegum Europe Enterprise Network um þróun til sjálfbærra og hringlaga hagkerfa. Viðburðurinn sem nefnist SustainableSolutionsMatch 2025 er þverfaglegur, stafrænn viðburður sem fer fram á netinu 7.-21. febrúar nk.

Orkídea hefur talað fyrir þróun hringrásargarða á Íslandi þeirra sem í daglegu máli eru kallaðir grænir iðngarðar.

  1. Grænn iðngarður þarf að byggja á því lykilstefi að úrgangsstraumar (efni og/eða orka) eins eða fleiri fyrirtækja innan iðngarðs geti nýst sem auðlind annarra fyrirtækja. Markmið um hringrás auðlinda verður að vera virt.
  2. Grænn iðngarður þarf að fylgja flokkunarkerfi ESB (EU Taxonomy for sustainable activities) um sjálfbæra atvinnustarfsemi.[1]

Flokkunarkerfinu er ætlað er að hemja nýja efnistöku og ágang í auðlindir jarðar og efla fjölnýtingu og verðmætasköpun úr þeim efnistraumum sem eru nú þegar í umferð.

Orkídea hefur lagt áherslu á að Ísland eigi að setja sér metnaðarfull markmið þegar kemur að þóun grænna hringrásargarða enda allar forsendur til þessa fyrir hendi hér á landi.

Viðburður Europe Enterprise Network samanstendur af erindum sérfræðinga sem munu fjalla um mótun græns hagkerfis í Evrópu, örkynningar á tæknilausnum og í framhaldi gefst þátttakendun færi á að eiga stefnumót við fyrirtæki sem starfa á þessum vettvangi.

Umskipti Evrópu í sjálfbærara og hringlaga hagkerfi

Viðburðurinn SustainableSolutionsMatch 2025 er þverfaglegur, stafrænn viðburður sem fer fram á netinu 7.-21. febrúar nk.

Nánari upplýsingar: dagskrá og skráning

Sjá frétt Rannís um viðburðinn hér

 

[1] EU Taxonomy for Sustainable Activities: https://finance.ec.europa.eu/sustainable-finance/tools-and-standards/eu-taxonomy-sustainable-activities_en

 

Fleiri fréttir

Allar fréttir
13. maí 2026
Ársskýrsla Orkídeu 2025 komin út
Lesa meira
5. maí 2026
Neikvætt kolefnisspor og meiri kraftur með lífmetandráttarvélum
Lesa meira
27. apríl 2026
18 mánuðir án dísilolíu: „Dráttarvélin gekk alfarið á kúaskít“
Lesa meira
16. apríl 2026
„Hættu að kaupa eldsneyti – byrjaðu að framleiða það“
Lesa meira