Sl. miðvikudag undirrituðu Orkídea og Orka náttúrunnar / ON Power viljayfirlýsingu um samstarf í nýsköpunarverkefnum og styðja við, með ráðgjöf, nýsköpunarstarf frumkvöðla sem geta sótt um aðstöðu í nýju húsi nýsköpunar á V-Suðurlandi, Glóð. Glóð sem verður staðsett við Hellisheiðarvirkjun í Jarðhitagarði ON. Frumkvöðlafyrirtæki fá þarna aðstöðu til að vinna að frumgerðum sínum en gert er ráð fyrir örlóðum fyrir frumkvöðla með aðgengi að auðlindum til rannsókna og þróunar t.d. heitt vatn, rafmagn. Viljayfirlýsingin snýst um samstarf og nýsköpun á sviði matvælaframleiðslu og líftækni.
Nafn hússins, Glóð, var valið úr hópi 1300 tillagna sem bárust ON í samkeppni um nafn á húsið. Tveir tillöguhafar, sem bæði lögðu til nafnið Glóð, og var kollegi okkar úr TerraformingLife verkefninu, Sigurður Trausti Karvelsson frá First Water ehf, annar þeirra. Til hamingju Sigurður!
Við hjá Orkídeu erum stolt að taka höndum saman við ON og fleiri í þessari vegferð. Spennandi tímar eru framundan á sviði orkunýsköpunar og tengdra sviða!
Myndir: ON