18. febrúar 2022

Ráðstefna um matvælaframleiðslu á Selfossi í apríl

Ráðstefnan Maturinn, jörðin og við verður haldin á Selfossi dagana 7.-8. apríl nk. Markmið ráðstefnunnar er að hvetja til upplýstrar umræðu um áskoranir í matvælaframleiðslu með hliðsjón af loftslagsmálum, heilsusjónarmiðum og fleiri áhrifaþáttum á neyslu og lífsstíl fólks. Sjónum verður sérstaklega beint að áhrifum á samfélög, byggð og atvinnulíf í landinu og þeim tækifærum sem við stöndum frammi fyrir.

Ráðstefnan er haldin af félaginu Auður Norðursins í samvinnu við Byggðastofnun og SASS, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar um skráningu o.fl. verða gefnar hér á vefsíðu og samfélagsmiðlum Orkídea, þegar nær dregur.

Takið dagana frá!

Fleiri fréttir

Allar fréttir
6. mars 2026
Terraforming LIFE samstarfsverkefni Orkídeu vekur athygli á lífgasráðstefnu í Hollandi
Lesa meira
3. mars 2026
Framtíð útflutnings og græn nýsköpun: Vel heppnaður fundur og vettvangsferð
Lesa meira
16. febrúar 2026
Nýir möguleikar í ræktun á Suðurlandi: Hátækniheimsókn frá Kína
Lesa meira
13. febrúar 2026
Vísindi sem móta framtíðina: Úthlutað úr Vísinda- og rannsóknarsjóði
Lesa meira