Sæbýli ehf hefur þróað nýstárlegt lóðrétt eldiskerfi, SustainCycle, sem er sérhannað landeldiskerfi fyrir japönsk sæeyru. Sæeyru eru botnsjávardýr og ein verðmætasta og dýrasta afurðin sem hægt er að panta sér á sushiveitingahúsum. Áætlanir Sæbýlis hljóða upp á að framleiða 1.000 tonn af sæeyrum sem eru 10 sinnum verðmætari en þorskur. Heildarmarkaðurinn fyrir sæeyru í dag er um 200.000 tonn. Markaðurinn hefur vaxið um 15 % á ári síðustu 20 árin enda er sushi alltaf að verða vinsælli matur á heimsvísu. 1.000 tonna framleiðsla af sæeyrum er þá ígildi 10.000 tonna af þorski inní íslenska þjóðarbúið eða um 5% af núverandi þorskkvóta. Sæbýli ehf. að ætlar að hasla sér völl á þessum markaði á næstu árum með þessa verðmætu afurð sem framleidd er á Eyrarbakka. Lóðrétt eldiskerfið leiðir til betri fóðurnýtingar, minni orkunotkunar og krefst minna landrýmis en þörf er á í hefðbundnum eldisaðferðum. Eldiskerfið stuðlar einnig að sjálfbærni og hefur jákvæð áhrif á umhverfið og nýtingu náttúruauðlinda. Við heimsóttum Sæbýli í síðustu viku.
Mynd neðar: Ingólfur Arnarson (t.v.) framleiðslustjóri og Kolbeinn Björnsson, markaðsstjóri og annar stofnenda Sæbýlis