Starfsfólk Orkídeu er statt í Hollandi þessa dagana á hinni alþjóðlegu ManuREsource ráðstefnu sem nú er haldin í sjöunda sinn, að þessu sinni í Ede í nágrenni Wageningen. Þar leiða þau Helga Gunnlaugsdóttir og Sveinn Aðalsteinsson hringborðsumræður um áskoranir í lífgasframleiðslu, þar sem reynsla af verkefninu Terraforming LIFE nýtist afar vel til að takast á við krefjandi áskoranir í alþjóðlegu samhengi.
Að breyta úrgangi í orku og verðmæti
ManuREsource er ein stærsta alþjóðlega ráðstefnan með áherslu á stjórnun og nýtingu á lífrænum áburði og hliðarstraumum. Markmið ráðstefnunnar er að deila reynslu milli svæða og skoða nýjustu tækni og nýsköpun í meðhöndlun áburðar. Þar koma saman helstu sérfræðingar heims í málaflokknum með það að markmiði að finna leiðir til að breyta „úrgangi“ í verðmæti.
„Terraforming LIFE á erindi langt út fyrir landsteinan“
Líf og fjör var á hringborði Orkídeu og snerust umræðurnar um þau fjölmörgu tækifæri og áskoranir sem fylgja framleiðslu á lífgasi og áburði. Sérstök áhersla var lögð á Terraforming LIFE verkefnið, en í því er unnið markvisst að því að breyta hliðarstraumum frá landeldi og landbúnaði á Suðurlandi í verðmætar afurðir.
Það var virkilega lærdómsríkt að finna kraftinn í umræðunum. Margar áhugaverðar spurningar komu upp sem sýna að þær lausnir sem við erum að þróa á Suðurlandi eiga erindi langt út fyrir landsteinana, segir Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu.
Verðmæt tengsl fyrir sunnlenska nýsköpun
Auk þess að miðla þekkingu úr heimabyggð er ráðstefnan dýrmætur vettvangur til að mynda tengsl við erlenda samstarfsaðila. Með því að sækja nýjustu þekkingu út fyrir landsteinana og tengja hana við öflugt bakland Orkídeu erum við að styrkja samkeppnishæfni sunnlenskra afurða og stuðla að enn sjálfbærari matvælaframleiðslu.