Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vorúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands 2024. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi. Umsóknarfrestur er til 5. mars nk.
Kynningarfundur verður haldinn á netinu 13. feb. nk. kl. 12.15.
Allar nánari upplýsingar má finna hér.
Hvetjum alla sunnlenska frumkvöðla til að kynna sér þessa möguleika!