6. júní 2025

Vel heppnuð ráðstefna Orkídeu og Eims um lífgas og áburðarframleiðslu

Eimur og Orkídea stóðu fyrir ráðstefnunni Lífgas- og áburðarframleiðsla: Tækifæri íslensks landbúnaðar, á Hótel Selfossi 5. júní.

Erindin voru fjölbreytt, fjallað var sérstaklega um möguleg lífgas- og áburðarverkefni á Dysnesi við Eyjafjörð, í nágrenni Reykholts í Bláskógabyggð og í Þorlákshöfn. Við fengum að heyra af reynslu Svía á uppsetningu smáskala lífgasvera, og af reynslu bænda frá Færeyjum, við notkun á meltu til áburðar. Fulltrúar frá Sorpu sem starfrækja eina lífgasver landsins fóru yfir sína starfsemi, og rektor Landbúnaðarháskólans fjallaði um menntunar- og rannsóknaþörf geirans. Þá var fjallað um fjármögnunarleiðir, og fulltrúi Bændasamtaka Íslands ræddi áherslur þeirra hvað snertir hliðarafurðir landbúnaðar. Margrét Á. Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Bændasamtakana tók að sér fundarstjórn.
Ráðstefnan var vel sótt, en um 140 manns höfðu skráð sig ýmist í staðfund eða streymi. Ráðstefnugestir gátu einnig komið að spurningum með forritinu Slido. Upptakan að fundinum er aðgengileg á YouTube. Það er augsýnilega mikill áhugi á viðfangsefninu, enda mikil tækifæri fyrir hendi til að efla sjálfbærni landbúnðarins og þar með fæðuöryggi þjóðarinnar með því að draga úr þörf á innfluttum áburði og eldsneyti. Lífgas- og áburðarver leiða einnig af sér umtalsverða forðun á losun gróðurhúsalofttegunda.
Undir lok fundarins samþykktu fundargestir eftirfarandi ályktun:
Lífgas- og áburðarvinnsla hefur í för með sér fjölþættan ávinning fyrir umhverfi, atvinnulíf, stjórnvöld og samfélagið í heild. Þau lífgasverkefni sem hafa verið í þróun hafa lagt mikið til skilnings á þeim áskorunum og tækifærum sem til staðar eru á Íslandi og yfirfærslugildi þeirra er umtalsvert. Til að hægt sé að raungera þann ávinning sem af þeim hlýst, þarf öflugt samstarf milli atvinnuvegarráðuneytisins og umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytisins við samtök bænda, sveitarfélög og afurðastöðvar. 
Orkídea og Eimur þakka þátttakendum og öllum sem að fundinum komu fyrir þeirra framlag.
Ráðstefnan var haldin með stuðningi Landsvirkjunar.
Texti: Eimur

Fleiri fréttir

Allar fréttir
6. júní 2025
Vel heppnuð ráðstefna Orkídeu og Eims um lífgas og áburðarframleiðslu
Lesa meira
30. maí 2025
Lífgasráðstefnan 5. júní – dagskrá
Lesa meira
27. maí 2025
Orkídea og samstarfverkefni með vel heppnaðan viðburð á Iceland Innovation Week
Lesa meira
20. maí 2025
Ráðstefna Orkídeu og Eims um lífgas 5. júní
Lesa meira