10. nóvember 2026

Fundir fyrir kúabændur í Rangárþingi um lífgas- og áburðarframleiðslu

Orkídea, samstarfsverkefni um orkutengda nýsköpun í matvælaframleiðslu á Suðurlandi, býður kúabændur til fundar í Hvolnum á Hvolsvelli um lífgas- og áburðarframleiðslu úr hliðarstraumum landbúnaðar. Markmið okkar er að kynna spennandi lífgasverkefni sem byggir á staðbundnum lífgasverum á kúabúum.

Kynnt verða grunnatriði lífgas- og áburðarframleiðslu – hráefni, rekstur, kostir, ávinningur og áhætta sem og skipulag og reynsla nágrannaþjóða af lífgasframleiðslu. Áhersla verður á að kynna ferlið á mannamáli, hvaða möguleika það býður upp á í hringrásarhagkerfinu og til að auka fæðu- og orkuöryggi á Íslandi. Einnig gefst góður tími fyrir spurningar og samtal við bændur um þessar hugmyndir.

Staðsetning fundar og tímasetning:  

Félagsheimilið Hvoll, Hvolsvelli, fimmtudaginn 12. nóvember kl. 14 – 15.30

Aðgangur er ókeypis og opinn öllum áhugasömum um þessa tækni.

Skráning er æskileg með tölvupósti á orkidea@orkidea.is til að við getum áætlað magn veitinga.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Starfsfólk Orkídeu

Fleiri fréttir

Allar fréttir
10. nóvember 2026
150 milljónir í styrki til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum
Lesa meira
10. nóvember 2026
Fundir fyrir kúabændur í Rangárþingi um lífgas- og áburðarframleiðslu
Lesa meira
4. nóvember 2026
Ný rannsókn Value4Farm sýnir fram á tækifæri fyrir sunnlenskan landbúnað
Lesa meira
27. október 2026
Orkídea kynnir möguleika á lífgasframleiðslu í Gunnbjarnarholti
Lesa meira