Landsvirkjun fagnar nýrri nýsköpunarstefnu Suðurlands og telur hana mikilvægan grunn að aukinni verðmætasköpun, samkeppnishæfni og sjálfbærri þróun í landshlutanum. Þetta kemur fram í nýrri skoðanagrein Jónu Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun, sem birtist í Bændablaðinu.
Í greininni bendir Jóna á að á Suðurlandi séu einstakar aðstæður þar sem öflug orkuvinnsla, landbúnaður, matvælaframleiðsla og ferðaþjónusta fari saman. Þessi fjölbreytni skapi dýrmæta þekkingu og reynslu sem nýtist vel til að þróa nýjar lausnir í nánu samstarfi atvinnulífs, menntastofnana, sveitarfélaga og frumkvöðla.
Ábyrg auðlindanýting og hringrásarhagkerfi
Áherslur nýsköpunarstefnunnar á þróun hringrásarhagkerfis – þar sem orka, vatn og glatvarmi eru nýtt á skilvirkari hátt – falla vel að stefnu Landsvirkjunar um ábyrga auðlindanýtingu og minni sóun. Landsvirkjun hefur um árabil tekið virkan þátt í slíku uppbyggingarstarfi á Suðurlandi, meðal annars í gegnum samstarfsverkefnið Orkídeu og með stuðningi við unga frumkvöðla í Fyrirtækjasmiðju.
Frá skólastofunni í framkvæmd
Jóna undirstrikar einnig mikilvægi þess að efla nýsköpunarmenningu á öllum skólastigum og tryggja örugga orkuinnviði, sem séu lykilforsenda fyrir nýjum verkefnum. Að mati Landsvirkjunar muni árangur nýsköpunarstefnunnar þó fyrst og fremst ráðast af því hvernig tekst til við að fylgja henni eftir í framkvæmd, með skýrri forgangsröðun og mælanlegum árangri.
Nýsköpunarstefnu Suðurlands má nálgast hér.
Lesa alla greinina: Skoðanagrein Jónu Bjarnadóttur má lesa í heild sinni á vef Bændablaðsins: Mikilvægt skref til aukinnar verðmætasköpunar