Orkídea heimsótti nýverið Höllu Sif Svansdóttur Hölludóttur, garðyrkjubónda og eiganda Sólskins grænmetis á Flúðum. Halla var á haustmánuðum valin í hóp fyrstu 100 kvenhetja heims í landbúnaði og byggðaþróun af Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO). Hér er um að ræða gríðarlega flotta viðurkenningu, jafnt fyrir Höllu persónulega sem og fyrir sunnlenskan landbúnað og nýsköpun.
Stórhuga uppbygging á Suðurlandi
Halla hóf sinn feril af krafti. Á meðan hún var enn í námi við Garðyrkjuskólann á Reykjum festi hún kaup á garðyrkjustöðinni Gróðri á Hverabakka við Flúðir, sem fól í sér um 4000 fm gróðurhús. Fljótlega stækkaði hún við sig með kaupum á garðyrkjustöðinni Melum (um 5000 fm) og sameinaði reksturinn undir merkjum Sólskins sem grænmeti.
Á stöðvunum tveimur er framleitt fjölbreytt úrval af gæðagrænmeti, tómatar, gúrkur og jarðarber í gróðurhúsum, auk útiræktaðs grænmetis á borð við blómkál, spergilkál og sellerí.
Nýsköpun og ábyrgð á allri virðiskeðjunni
Halla hefur sýnt mikið frumkvæði og farið óhefðbundnar leiðir í sínum rekstri. Árið 2024 hóf hún sjálf innflutning á koltvísýringi, sem er lífsnauðsynlegur fyrir góðan vöxt í ylrækt. Hún er nú í samvinnu við fyrirtækið Veldix varðandi þann innflutning.
Þá ákvað Halla að standa utan Sölufélags garðyrkjumanna, sem er mikil áskorun en jafnframt stórt tækifæri. Þessari ákvörðun fylgdi mikill stofnkostnaður; fjárfesta þurfti í flutningabíl, tækjabúnaði og fjölnota kössum, auk umfangsmikillar vinnu við þróun, hönnun og markaðssetningu á nýju vörumerki. Þrátt fyrir þungan róður í upphafi var skrefið stigið með framtíðina í huga. Eins og Halla bendir á er dýrmætt að geta borið fulla ábyrgð á sinni eigin vöru frá upphafi til enda og haft þannig yfirsýn yfir alla virðiskeðjuna.
Við hjá Orkídeu hvetjum til áframhaldandi nýsköpunar í matvælaframleiðslu og óskum Höllu og hennar samstarfsfólki innilega til hamingju með þessa glæsilegu viðurkenningu FAO!