20. maí 2025

Ráðstefna Orkídeu og Eims um lífgas 5. júní

Skráning, hvort sem er í stað eða fjar hér

Lífgas- og áburðarframleiðsla: Tækifæri  íslensks landbúnaðar

Takið daginn frá! 5. júní 2025

Orkídea og Eimur, samstarfsverkefni um orkutengda nýsköpun, bjóða til ráðstefnu um lífgas- og áburðarframleiðslu úr hliðarstraumum landbúnaðar. Markmið okkar er að kynna spennandi lífgasverkefni Orkídeu og Eims fyrir hagaðilum, t.d. bændum og samtökum þeirra, stjórnsýslu og ráðuneytum, ráðgjafaþjónustu, fyrirtækjum, fulltrúum sveitarfélaga og almenningi. Jafnframt mæta  erlendir fyrirlesarar og greina frá sinni reynslu af lífgas- og áburðarframleiðslu.

Kynnt verða grunnatriði lífgas- og áburðarframleiðslu – hráefni, rekstur, kostir, ávinningur og áhætta sem og skipulag og reynsla nágrannaþjóða af lífgasframleiðslu. Áhersla verður á að kynna ferlið á mannamáli, hvaða möguleika það býður upp á í hringrásarhagkerfinu og til að auka fæðuöryggi á Íslandi. .

Staður og tími: Hótel Selfoss, 5. júní kl. 10-15

Aðgangur að ráðstefnunni er öllum heimill og ókeypis, og verður henni einnig streymt. Skráning er nauðsynleg fyrir þátttöku bæði í raunheimum og streymi. Skráning, hvort sem er í stað eða fjar hér

Fleiri fréttir

Allar fréttir
27. október 2026
Orkídea kynnir möguleika á lífgasframleiðslu í Gunnbjarnarholti
Lesa meira
16. október 2026
Orkídea hýsti stóran alþjóðlegan fund Value4Farm verkefnisins á Selfossi
Lesa meira
1. október 2026
Nýta kraft sjávarins: Orkídea kynnir sér nýsköpun Haf-Afls í Vestmannaeyjum
Lesa meira
22. september 2026
Möguleikar á staðbundnu lífgasveri ræddir í Miklaholti
Lesa meira