6. febrúar 2024

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vorúthlutun Uppbyggingarsjóð Suðurlands 2024. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileika atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi. Umsóknarfrestur er til 5. mars nk.

Kynningarfundur verður haldinn á netinu 13. feb. nk. kl. 12.15.

Allar nánari upplýsingar má finna hér.

Hvetjum alla sunnlenska frumkvöðla til að kynna sér þessa möguleika!

Fleiri fréttir

Allar fréttir
27. nóvember 2026
Opnað fyrir umsóknir í Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands
Lesa meira
25. nóvember 2026
Landsvirkjun fagnar nýrri nýsköpunarstefnu Suðurlands: „Mikilvægt skref til aukinnar verðmætasköpunar“
Lesa meira
16. nóvember 2026
Sunnlensk kvenhetja í landbúnaði: Halla Sif verðlaunuð af Sameinuðu þjóðunum
Lesa meira
10. nóvember 2026
150 milljónir í styrki til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum
Lesa meira