Frá tilraunastöð Árósarháskóla í Danmörku sem tekur einnig þátt í Value4Farm
University of Reading sem er þátttakandi í Value4Farm verkefninu ásamt Orkídeu o.fl., hefur þróað námskeið um hvernig megi samþætta framleiðslu á endurnýjanlegri orku á ræktarlandi samhliða hefðbundnum landbúnaði m.t.t. framleiðslu á sólarorku annarsvegar og lífgasi og lífáburði hinsvegar. Hver sem er getur haft gagn af námskeiðinu en þó það sé aðallega hannað fyrir bændur er það áhugavert fyrir alla þá sem hafa áhuga á þróun, sjálfbærni og nýsköpun í landbúnaði. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu en frekari upplýsingar er að finna á slóðinni hér að neðan en Orkídea getur líka veitt frekari upplýsingar.