Sveinn Aðalsteinsson og Helga Gunnlaugsdóttir frá Orkídeu tóku nýverið þátt í öflugum tengslafundi í Vaasa í Finnlandi á vegum Evrópuverkefnisins BIO2REG. Á fundinum kynnti Orkídea vinnu sína að viðskiptamódelum fyrir staðbundin lífgasver sem vakti mikla athygli og lagði grunn að áframhaldandi samstarfi.
Fundurinn, sem fram fór í byrjun ágúst, var sérstaklega ætlaður völdum þróunarfélögum sem vinna að eflingu lífhagkerfis í dreifðum byggðum í Norður-Evrópu. Fulltrúum Orkídeu var boðið og greiddi BIO2REG ferðakostnað þátttakenda. Auk Orkídeu sátu fundinn fulltrúar frá nýsköpunarsetrinu Valbiom í Belgíu, VAMK fagháskólanum í Vaasa, rannsóknarstofnuninni RISE í Svíþjóð og finnska atvinnuþróunarfélaginu Business Kristinestad.
Sunnlensk viðskiptamódel vöktu eftirtekt
Fundurinn reyndist afar gagnlegur vettvangur fyrir tengslamyndun og þekkingarmiðlun. Sérstaka athygli fundarmanna vakti kynning Sveins á niðurstöðum Orkídeu varðandi rekstur og uppbyggingu á staðbundnum lífgasverum á Suðurlandi.
Í kjölfar kynningarinnar var fundað sérstaklega með fulltrúum Business Kristinestad til að ræða módelin enn frekar með samstarf í huga. Ljóst er að sú vinna sem Orkídea og samstarfsaðilar á Suðurlandi hafa lagt í greiningar á hringrásarhagkerfinu á mikið erindi á alþjóðlegum vettvangi. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir tekjumöguleikum lífgasvera og í raun forsenda þess að koma slíkum verum á fót. Þau skilaboð Orkídeu komust vel til skila á þessum fundi.
Vegvísir að framtíðarsamstarfi
Til að tryggja eftirfylgni eftir vel heppnaða ferð hefur þegar verið unnið að drögum að vegvísi (Road Map) fyrir áframhaldandi samstarf þessara aðila. Með þessu styrkir Orkídea enn frekar alþjóðlegt tengslanet sitt og fær til sín dýrmæta þekkingu í landshlutann sem mun nýtast við frekari uppbyggingu á orkutengdri matvælaframleiðslu á Suðurlandi.