Mikill meirihluti bænda er jákvæður gagnvart því að samþætta hefðbundinn búrekstur og framleiðslu á endurnýjanlegri orku. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á vegum Evrópuverkefnisins Value4Farm, sem Orkídea er þátttakandi í. Niðurstöðurnar draga fram mikilvægi fræðslu og stuðnings til að hraða orkuskiptum í landbúnaði.
Rannsóknin, sem nýverið var birt í fræðiritinu Energy Reports, greinir viðhorf bænda í Belgíu, Danmörku, Póllandi og á Íslandi til þess að samþætta hefðbundinn landbúnað og orkuframleiðslu á borð við sólarorku, lífgas og lífmassa. Markmiðið var að kortleggja hvaða lausnir eru nú þegar í notkun, hvað hvetur bændur til fjárfestinga og hvaða hindranir standa í vegi fyrir frekari uppbyggingu.
Mikill áhugi á fjárfestingum
Niðurstöðurnar gefa skýra mynd af framsækni í evrópskum landbúnaði. Um 54% þátttakenda í rannsókninni framleiða nú þegar einhvers konar orku, þar sem sólarorka er algengust, en flóknari lausnir eins og lífgas eru skemur á veg komnar. Áhuginn er þó ótvíræður, því 56% bænda eru að skoða möguleika á frekari fjárfestingum í endurnýjanlegri orku.
Tölfræðigreining leiddi í ljós að fjárhagslegur ávinningur og aukin sjálfbærni í rekstri eru helstu hvatarnir. Bændur horfa einnig mikið til framtíðarinnar; hvort arftaki sé að búinu skiptir miklu máli þegar kemur að ákvörðunum um stórar fjárfestingar. Auk þess vilja bændur helst innleiða tækni sem er tiltölulega aðgengileg og auðveld í rekstri.
Íslenskir bændur skera sig úr
Þegar rýnt er í svör íslenskra þátttakenda kemur í ljós áhugaverð sérstaða því íslenskir bændur skera sig úr að því leyti að áhugi þeirra liggur með öðru í skilvirkri meðhöndlun og förgun úrgangs. Þetta rímar vel við þá miklu grósku sem er í sunnlenskum landbúnaði varðandi hringrásarhagkerfið og möguleikum á að framleiða verðmæti úr lífrænum úrgangi. Sú umræða er að verða sífellt meira áberandi en Orkídea hefur einmitt unnið markvisst að því að kynna hringrásarlausnir á Suðurlandi til að efla samkeppnishæfni svæðisins.
Hindranir og þörf á stuðningi
Þótt áhuginn sé til staðar eru stærstu hindranirnar sem bændur nefna hár stofnkostnaður,áhyggjur af langtímaáhrifum á landnotkun og skortur á stuðningskerfum. Til að yfirstíga þessa þröskulda telja þátttakendur rannsóknarinnar brýnt að stjórnvöld og sjóðir komi til móts við atvinnugreinina með fjárhagslegum stuðningi á borð við styrki og hagstæð lán. Þá kölluðu flestir eftir aukinni verklegri fræðslu og námskeiðum til að auka þekkingu á tækninni og innleiðingu hennar. .
Í greininni er dregin sú ályktun að orkuframleiðsla í landbúnaði eigi ekki aðeins að vera fjöldi stakra innleiðingarverkefna, heldur þurfi að horfa á langtímaáætlanir fyrir ákveðin landsvæði mt.t. lífræns úrgangs sem má nýta til orkuframleiðslu. Með heildstæðri nálgun er hægt að mæla árangur og skapa mun sjálfbærari og arðbærari framtíð fyrir atvinnulífið og samfélagið allt.