Öflugt útflutningsstarf, sjálfbærni og græn nýsköpun voru í brennidepli á fjölsóttum kynningarfundi Íslandsstofu og SASS sem fram fór í Tryggvaskála á Selfossi í gær. Fulltrúar Orkídeu mættu á fundinn þar sem farið var yfir þau fjölmörgu tækifæri sem bíða sunnlenskra fyrirtækja á erlendum mörkuðum, sérstaklega þegar kemur að matvælaframleiðslu og hringrásarhagkerfinu.
Sjálfbærni og verðmætasköpun í forgrunni
Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, kynnti nýja langtímastefnu stjórnvalda og atvinnulífsins sem hefur það markmið að tvöfalda útflutningstekjur á næstu 20 árum. Fram kom í máli Péturs að samkeppnisforskot okkar felist ekki í magni eða lágu verði, heldur í hágæðavörum, sjálfbærri nýtingu auðlinda, hreinleika og tækniþekkingu.
Þessi framtíðarsýn rímar fullkomlega við áherslur Orkídeu. Stefna Íslandsstofu skiptir útflutningnum í fimm meginstoðir en þar vega afar þungt málaflokkar sem snerta Suðurlandið og starf Orkídeu beint: Orka og grænar lausnir, hugvit og tækni, og sjávarútvegur og matvæli.
Öflug aðgerðaáætlun og stórfjárfestingar
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, forstöðumaður útflutnings og fjárfestinga, fór yfir aðgerðaáætlun ársins þar sem íslenskum fyrirtækjum gefst kostur á að koma sér á framfæri. Þar má sérstaklega nefna viðburði sem tengjast nýsköpun í matvælum og orku, á borð við Seafood Expo og World Geothermal Congress. Því næst fór Karl Guðmundsson, verkefnastjóri stórfjárfestinga í forsætisráðuneytinu, yfir samstarf stjórnvalda og Íslandsstofu varðandi stórfjárfestingar og væntanlega atvinnustefnu stjórnvalda.
Gróska í matvælaframleiðslu og hringrásarhagkerfinu í Ölfusi
Að fundi og góðum umræðum loknum var haldið í vettvangsferð til að skoða stórverkefni í nærumhverfinu. Fulltrúar Orkídeu slógust í för með fulltrúum SASS, Háskólafélags Suðurlands, ráðuneytisins og Íslandsstofu og heimsóttu landeldisstöðina First Water og græna iðngarðinn Ölfus Cluster í Sveitarfélaginu Ölfusi, auk þess að fá kynningu á Eyjagöngum.
Heimsóknin var einkar áhugaverð og sýndi svart á hvítu þá miklu grósku, nýsköpun og fjárfestingu sem á sér stað í hringrásarhagkerfinu og hátæknimatvælaframleiðslu á Suðurlandi.
Við hjá Orkídeu þökkum SASS, Íslandsstofu og öðrum fundargestum kærlega fyrir frábæran fund og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við að efla græna nýsköpun og útflutning í okkar landshluta.
Sjá má myndir hér að neðan úr vettvangsferðinni.