Orkídea leitar stöðugt nýrra leiða til að efla hringrásarhagkerfið á Suðurlandi. Hluti af því starfi er að kynna sér nýsköpun og umhverfislausnir í atvinnulífinu. Nýverið heimsóttu fulltrúar Orkídeu seiðaeldisstöðina Fjallalax í Grímsnes- og Grafningshreppi til að skoða starfsemina og rýna sérstaklega í þann búnað sem nýttur er til meðhöndlunar á affallsvatni og lífrænum úrgangi.
Orkídea heimsótti á dögunum seiðaeldisstöðina Fjallalax í Hallkelshólum í Grímsnes- og Grafningshreppi, þar sem við kynntum okkur starfsemi stöðvarinnar og þann búnað sem nýttur er við meðhöndlun affallsvatns og lífræns úrgangs. Kristine Aarnes, framleiðslu- og stöðvarstjóri, tók á móti okkur og fór yfir helstu þætti í rekstri stöðvarinnar.
Mikilvægur hlekkur í stærri keðju
Fjallalax er í eigu Arnarlax ehf., sem er með höfuðstöðvar á Bíldudal. Auk stöðvarinnar í Hallkelshólum rekur fyrirtækið tvær seiða- og áframeldisstöðvar á Suðurlandi, Laxabraut 5 og Ísþór í Þorlákshöfn. Stöðin í Hallkelshólum var reist árið 1986 en Arnarlax festi kaup á stöðinni og rekstri hennar árið 2022.
Fjallalax gegnir mikilvægu hlutverki í framleiðsluferli Arnarlax en stöðin er nýtt sem klak- og frumfóðrunarstöð. Þar eru árlega framleidd um 1,2 milljónir seiða sem ná um 100 gramma þyngd áður en þau eru flutt til áframeldis í stöðvar fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Að því loknu eru seiðin flutt með brunnbáti í sjókvíar fyrirtækisins á Vestfjörðum.
Frá hrogni til seiðis
Fram kom í kynningu stöðvarinnar að hrogn eldislaxa taka að jafnaði um sextíu daga að klekjast út við 8 gráðu hita í klakskápum. Við klak bera seiðin kviðpoka sem sér þeim fyrir næringu fyrstu vikurnar en að þeim tíma liðnum eru þau flutt í ferskvatnseldistanka þar sem fóðrun hefst. Hitastig í tönkunum er á bilinu 10 til 14 gráður og lýsing er dempuð allan sólarhringinn. Eftir um sex vikna dvöl í tönkunum eru seiðin flokkuð eftir stærð, bólusett og færð í stærri eldistanka til áframeldis.
Hreinsibúnaður og nýting hliðarstrauma
Í heimsókninni var sérstök áhersla lögð á að skoða hreinsibúnað stöðvarinnar sem ætlað er að uppfylla kröfur stjórnvalda um hreinsun affallsvatns frá fiskeldinu. Búnaðurinn fjarlægir lífræn efni á borð við fiskeldismykju og fóðurleifar úr frárennslinu. Affallsvatnið er síað í tromlusíu sem aðskilur fiskamykjuna frá vatninu, en þar sem efnið er enn mjög vatnsríkt þarf að meðhöndla það frekar í afvötnunarbúnaði áður en hægt er að safna því og gera vinnsluhæft.
Að mati Orkídeu felast veruleg tækifæri í nýtingu þess lífræna úrgangs sem fellur til í starfseminni, enda inniheldur hann verðmæt næringarefni sem nýst geta til frekari verðmætasköpunar. Sú sýn samræmist markmiðum Terraforming-LIFE verkefnisins, sem Orkídea á aðild að, en verkefnið lýtur að þróun sjálfbærra lausna, aukinni hringrás auðlinda og bættri nýtingu lífrænna hliðarafurða t.d. sem áburður fyrir bændur.