Eimur og Orkídea blása til vefþings um orkuskipti í landbúnaði þann 9. apríl næstkomandi. Sjónum verður beint að stöðu og framtíð þessarar mikilvægu umbreytingar í einni af lykilgreinum íslensks samfélags og atvinnulífs. Vefþingið er hluti af Evrópuverkefnunum RECET og Value4Farm, og stendur frá kl. 13:00 til 15:30.
Markmið þingsins er að varpa ljósi á þau tækifæri sem felast í auknu orkusjálfstæði greinarinnar. Sérstök áhersla verður lögð á raunhæfar lausnir og þróun sem þegar er hafin, bæði hér á landi og erlendis. Meðal viðfangsefna er rafmagns- og metanvæðing landbúnaðartækja, sem og framleiðsla og nýting metans sem orkugjafa.
Á þinginu verður líka fjallað um lykilspurningar sem snerta orkuskipti í landbúnaði: Hvaða hvatar og regluverk munu hafa áhrif á þróunina og hvaða tæknilausnir standa bændum til boða?
Þingið mun jafnframt draga fram alþjóðlega reynslu af því hvernig þessi mál eru að þróast annars staðar ásamt því að varpa ljósi á íslenskar aðstæður og tækifæri. Sérfræðingar og fulltrúar úr atvinnulífi og rannsóknum munu miðla þekkingu sinni til að styðja við upplýsta umræðu.
Lögð verður rík áhersla á raunsæi og skilning á rekstrarumhverfi bænda í dag. Orkuskipti eru samfélagslegt verkefni sem snýr beint að fæðuöryggi, samkeppnishæfni og sjálfbærni til framtíðar.
Vefþingið er opið öllum áhugasömum að kostnaðarlausu. Nánari dagskrá verður kynnt síðar en við hvetjum fólk til að taka daginn frá!