22. september 2026

Möguleikar á staðbundnu lífgasveri ræddir í Miklaholti

Starfsfólk Orkídeu heimsótti nýverið bændurna í Miklaholti í Bláskógabyggð til að ræða spennandi tækifæri sem felast í uppbyggingu á staðbundnu lífgas- og áburðarveri. Heimsóknin er liður í þátttöku Orkídeu í Evrópuverkefninu Value4Farm, sem miðar að því að efla staðbundna orkuvinnslu í landbúnaði.

Uppbygging lífgasvera á bújörðum er raunhæfur kostur sem sífellt fleiri bændur horfa til. Ljóst er að stærri kúabændur á Suðurlandi hafa mikinn áhuga á þeim ávinningi sem fylgir því að vinna orku og betri áburð úr lífrænum úrgangi heima á búinu.

Eitt stærsta kúabú landsins í Bláskógabyggð

Í Miklaholti taka bændurnir Óttar Bragi Þráinsson og Line Christensen, ásamt syni sínum Mattíasi, á móti starfsfólki Orkídeu. Fjölskyldan rekur þar eitt af stærri kúabúum landsins með um 400 gripi, þar af 136 mjólkurkýr. Jörðin er mikil landkostajörð, tæplega 1.200 hektarar að stærð, og þar af er ræktarland talsvert. Viðamikið ræktunarland og stór bústofn gera jörðina einkar vel til þess fallna að skoða raunhæfa möguleika á orkuvinnslu.

Lífgasver skapar hringrás og aukin verðmæti

Á fundinum var farið ítarlega yfir þá möguleika sem staðbundið lífgas- og áburðarver getur boðið upp á fyrir jörð eins og Miklaholt. Með því að nýta kúamykju og aðra lífræna strauma sem falla til við reksturinn er hægt að framleiða raforku og hita fyrir býlið sjálft, um leið og bændur fá betri áburð til baka sem nýtist beint á ræktarlandið.

Verkefnið er hluti af víðtækari vinnu Orkídeu innan Value4Farm verkefnisins, sem miðar að því að skoða möguleika á staðbundinni orkuvinnslu í landbúnaði.

Auðlindir Suðurlands nýttar til fullnustu

Fyrir okkur hjá Orkídeu var afar gefandi og ánægjulegt að heimsækja fjölskylduna í Miklaholti. Mikill kraftur er í sunnlenskum landbúnaði og hvetjandi að sjá hvernig allir landkostir jarðarinnar, líkt og heitt vatn og gjöfult ræktunarland, eru nýttir af útsjónarsemi til að framleiða fyrsta flokks matvæli. Staðbundin orkuvinnsla gæti orðið næsta rökrétta skrefið í þeirri vegferð.

 

Fleiri fréttir

Allar fréttir
22. september 2026
Möguleikar á staðbundnu lífgasveri ræddir í Miklaholti
Lesa meira
4. september 2026
Orkídea með tvö erindi á Nordic Biogas Conference
Lesa meira
27. ágúst 2026
Sveinn í viðtali hjá Business Kristinestad: „Vaxandi úrgangur kallar á nýjar lausnir“
Lesa meira
25. ágúst 2026
Orkídea miðlar þekkingu á evrópskum vettvangi í Finnlandi
Lesa meira