16. október 2026

Orkídea hýsti stóran alþjóðlegan fund Value4Farm verkefnisins á Selfossi

Orkídea tók nýverið á móti 25 erlendum sérfræðingum og samstarfsaðilum á Selfossi í tengslum við evrópuverkefnið Value4Farm. Tveggja daga fundur hópsins fór fram á Hótel Selfossi og var dagskráin þétt setin. Heimsóknin undirstrikar sterka stöðu Suðurlands þegar kemur að nýsköpun í grænum lausnum og sjálfbærri nýtingu auðlinda. 

Verkefnið Value4Farm miðar að því að þróa og innleiða sjálfbærar virðiskeðjur þar sem landbúnaður og endurnýjanleg orkuframleiðsla tvinnast saman. Orkídea fer með stórt hlutverk í verkefninu. Heimsóknin var því kærkomið tækifæri til að sýna erlendu gestunum þann mikla kraft sem býr í landshlutanum. 

Horft til framtíðar: Tilraunasvæði og ný viðskiptalíkön 

Fundarhöldin á Hótel Selfossi voru afar árangursrík. Farið var ítarlega yfir stöðu þriggja evrópskra tilraunasvæða (demo sites) verkefnisins Value4farm í Belgíu, Danmörku og á Ítalíu, sem öll miða að því að prófa nýjar tæknilausnir við raunverulegar aðstæður.

Einnig var kafað djúpt í greiningar á umhverfis- og samfélagslegum áhrifum verkefnisins, verndun líffræðilegs fjölbreytileika og jarðvegs ásamt því að Einar Mäntylä starfsmaður Orkídeu og nýsköpunarráðgjafi hélt greinargóða vinnustofu um hugverkarétt í nýsköpunarverkefnum.  

Á seinni degi fundarins var áherslan lögð á miðlun upplýsinga, kynningarmál, markaðsgreiningar og þróun nýrra viðskiptalíkana sem geta aðstoðað bændur og framleiðendur við að innleiða endurnýjanlega orku í sína starfsemi.  

Ný hitaveituborhola á Selfossi kynnt hópnum 

Í lok fyrri dags tók sveitarstjóri Árborgar, Bragi Bjarnason, ásamt Sveini Ægi Birgissyni, formanni eigna- og veitunefndar, á móti hópnum og flutti áhugaverða kynningu á nýrri hitaveituborholu sem nú er unnið að á Selfossi. Kynningin vakti mikla lukku og áhuga, enda sýnir hún í verki hvernig Sunnlendingar nýta staðbundna græna orku til að styðja við vöxt og uppbyggingu samfélagsins. 

Jarðhitagarðurinn kórónaði vel heppnaða ferð 

Eftir tvo langa og stranga fundardaga var haldið af stað frá Selfossi til Reykjavíkur með viðkomu í Jarðhitagarði ON við Hellisheiðarvirkjun. Þar fengu gestirnir einstaka innsýn í hvernig orkuauðlindir Íslands eru nýttar á sjálfbæran hátt með nýsköpun að leiðarljósi. 

Aðstandendur Orkídeu þakka gestunum kærlega fyrir komuna. Ljóst er að Suðurland á mikið erindi í alþjóðlegt samstarf af þessu tagi, þar sem nýsköpun, orkuskipti og sjálfbærni skapa ný tækifæri til framtíðar. 

Fleiri fréttir

Allar fréttir
16. október 2026
Orkídea hýsti stóran alþjóðlegan fund Value4Farm verkefnisins á Selfossi
Lesa meira
1. október 2026
Nýta kraft sjávarins: Orkídea kynnir sér nýsköpun Haf-Afls í Vestmannaeyjum
Lesa meira
22. september 2026
Möguleikar á staðbundnu lífgasveri ræddir í Miklaholti
Lesa meira
4. september 2026
Orkídea með tvö erindi á Nordic Biogas Conference
Lesa meira