14. apríl 2026

Orkuskipti í landbúnaði: Sjálfbærni og ný tækifæri

„Orkuskipti snúast ekki bara um að skipta út einum orkugjafa fyrir annan. Þetta er umbreyting sem á að hafa jákvæð áhrif á raunverulega sjálfbærni landbúnaðarins,“ sagði Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar, í opnunarávarpi sínu á vefþingi Orkídeu og Eims um orkuskipti í landbúnaði þann 9. apríl sl.

Í ávarpi sínu lagði Gestur áherslu á að ný Umhverfis- og orkustofnun, sem varð til við sameiningu Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar fyrir 15 mánuðum, væri nú þegar farin að sýna aukinn slagkraft. Hann nefndi sem dæmi að afköst við afgreiðslu starfsleyfa hefðu aukist um 75% og að stofnunin vinni náið að verkefnum sem styðja við bændur, m.a. í gegnum Loftslags- og orkusjóð og í samstarfi við aðila eins og Bláma á Vestfjörðum.

Þrjár stoðir raunverulegrar sjálfbærni

Í máli Gests kom fram sú sýn að orkuskipti þurfi að hvíla á þremur meginstoðum til að geta talist raunverulega sjálfbær.

Í fyrsta lagi þurfi að tryggja umhverfislegan ávinning með því að draga úr eða eyða neikvæðum umhverfisáhrifum og lágmarka kolefnisfótspor greinarinnar. Samhliða því þurfi að líta til samfélagslegs ávinnings, þar sem breytingarnar skapi ný störf, auki þekkingu og kalli á hæfnisaukningu innan landbúnaðarsamfélagsins. Að lokum sé fjárhagsleg sjálfbærni algjör forsenda, en hún felst í því að verkefnin séu rekstrarlega lífvænleg til lengri tíma og geti staðið undir sér sjálf án þess að treysta á styrki út í hið óendanlega. „Þegar við förum í umbreytingar þá erum við að gera það til góðs – fyrir fólkið sem ræktar landið, fyrir samfélagið og fyrir umhverfið okkar,“ sagði Gestur.

Lærdómur af hitaveituvæðingu og orkusjálfstæði

Gestur dró upp hliðstæðu við þegar Ísland var hitaveituvætt á sínum tíma, sem gerði okkur óháð alþjóðlegum orkukrísum. Hann benti á að í dag væru 35% bílaflota landsins þegar óháðir innfluttu eldsneyti. Með því að halda áfram á sömu braut í landbúnaði væri verið að skapa sambærilegt óhæði og lækka rekstrarkostnað til lengri tíma.

Orkuskiptin bjóða einnig upp á ný tækifæri til tekjuskipunar, t.d. með því að nýta aukaafurðir landbúnaðarins á nýjan hátt og hvetja til nýsköpunar í sveitum.

Hvatning til nýsköpunar

Að lokum hvatti Gestur bændur og frumkvöðla til að vera ófeimna við að fylgja eftir hugmyndum sínum og nýsköpun í orkumálum. Hann áréttaði að Umhverfis- og orkustofnun væri tilbúin að styðja við bakið á framförum í greininni.

„Þetta er enn ein umbreytingin sem mun gera okkur kleift að byggja landið okkar, rækta það og skapa velferð fyrir fólkið sem velur það að skaffa okkur hinum lífsgæði og mat. Verið þið ófeimin að hafa samband við okkur ef ykkur vantar samtalsaðila eða stuðning við að skapa farveg fyrir framfarir.“

Fréttin er byggð á opnunarávarpi Gests Péturssonar á vefþinginu „Orkuskipti í landbúnaði“ sem haldið var í samstarfi Orkídeu, Eims og Evrópuverkefnanna Value4Farm og RECET.

Ávarpið má sjá hér

Fleiri fréttir

Allar fréttir
14. apríl 2026
Orkuskipti í landbúnaði: Sjálfbærni og ný tækifæri
Lesa meira
10. apríl 2026
Mikill áhugi á orkuskiptum í landbúnaði
Lesa meira
24. mars 2026
Vefþing um tækifæri og lausnir í orkuskiptum landbúnaðarins
Lesa meira
18. mars 2026
Heimsókn í Fjallalax: Verðmæti í affallsvatni og lífrænum hliðarstraumum
Lesa meira