Fjallað er um spennandi nýsköpunarverkefni Orkídeu í nýrri umfjöllun á vef Morgunblaðsins, mbl.is. Þar fer Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu, yfir þátttöku félagsins í tveimur stórum Evrópuverkefnum sem munu efla hringrásarhagkerfið, auka orkusjálfstæði í landbúnaði og skapa gríðarleg verðmæti fyrir sunnlenska bændur.