Starsfólk Orkídeu ásamt Justine Vanhalst (í rauðu) verkefnastjóri IEBP
Starfsfólk Orkídeu gerði sér nýverið ferð á Suðurnes til að kynna sér þá öflugu uppbyggingu sem þar á sér stað á sviði nýsköpunar og hringrásarhagkerfis. Heimsótt voru þróunarfélagið Kadeco og Iceland Eco-Business Park.
Markmið ferðarinnar var að efla tengsl, eiga samtal á milli landshluta og sækja innblástur í verkefni sem byggja á sjálfbærni – en hvort tveggja eru málaflokkar sem skipta atvinnulíf á Suðurlandi gríðarlega miklu máli.
Hringrásarhagkerfið í verki
Hjá Iceland Eco-Business Park gafst tækifæri til að sjá hvernig húsnæði, sem upphaflega var byggt og ætlað undir álver, hefur fengið nýtt og umhverfisvænt hlutverk. Með því að nýta þessa stóru byggingu undir stærsta frumkvöðlasetur landsins, í stað þess að ráðast í nýbyggingar, er áætlað að komið sé í veg fyrir um 20.000 tonn af kolefnislosun.
Í garðinum er stefnt að því að byggja upp öflugt samfélag fyrirtækja sem vinna samkvæmt hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, þar sem úrgangur eins fyrirtækis verður að verðmætu hráefni fyrir annað. Fyrir starfsfólk Orkídeu er afar gagnlegt að sjá slíka hugmyndafræði í framkvæmd, enda liggja gríðarleg tækifæri á Suðurlandi þegar kemur að fullvinnslu og samnýtingu auðlinda.
Samstarf sem drifkraftur atvinnulífs
Einnig var farið í heimsókn til Kadeco, þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Félagið hefur það hlutverk að leiða samstarf ríkis, Isavia og sveitarfélaga á Suðurnesjum um þróun og markaðssetningu lands við flugvöllinn. Kynnt var ný þróunaráætlun, K64, sem miðar að því að efla atvinnustarfsemi og fjölbreytni í menningu og þjónustu til næstu áratuga.
Fyrir Orkídeu er dýrmætt að rýna í hvernig aðrir landshlutar nálgast stefnumótun og kalla ólíka hagaðila að borðinu. Öflugt samtal og skýr framtíðarsýn eru lykillinn að því að auka verðmætasköpun og lífsgæði, hvort sem er á Suðurnesjum eða Suðurlandi.