Tækifærin sem felast í nýtingu lífmassa til orku- og áburðarframleiðslu voru í brennidepli þegar Orkídea tók þátt í ráðstefnunni Nordic Biogas Conference í Reykjavík 3.-4. september síðastliðinn. Sveinn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri Orkídeu kynnti þar tvö metnaðarfull verkefni í tveim erindum sem miða að því að efla hringrásarhagkerfið, styrkja landbúnað og skapa verðmæti með græna orku að vopni.
Verðmæti sköpuð úr úrgangi á Suðurlandi
Fyrra erindið flutti Sveinn í samstarfi við Sigurð Líndal Þórisson hjá Eimi, sem vinnur að sambærilegum nýsköpunarverkefnum á Norðurlandi. Orkídea hefur það að markmiði að greiða götuna fyrir frumkvöðla í matvælaframleiðslu og líftækni. Sveinn kynnti hugmyndir og tekjustrauma fyrir staðbundið lífgasver á einu kúabúi í uppsveitum Árnessýslu sem Orkídea hefur unnið að í samvinnu við heimamenn. Vinnan er unnin á vegum ESB-verkefnisins Value4Farm sem snýr að markaðssetningu og uppbyggingu smærri lífgasstöðva á sveitabæjum, til dæmis hjá kúabændum og í ylrækt.
Sveinn kynnti einnig vinnu Orkídeu í ESB-verkefninu Terraforming LIFE, sem snýr að því að nýta úrgang frá landeldi og landbúnaði til að framleiða lífgas, rafmagn, hita og áburð í tengslum við laxeldi First Water í Þorlákshöfn.
Skapar ný tækifæri fyrir bændur og garðyrkju
Ávinningurinn af þessari þróun er margþættur fyrir íslenskt atvinnulíf. Fram kom í máli Sveins að með tilkomu lífgasstöðva fái bændur aðgang að betri og aðgengilegri áburði auk þess sem stöðvarnar skila bæði eldsneyti, rafmagni og varma.
Fyrir ylrækt opnast sá möguleiki að nýta lífrænt koldíoxíð (CO2) úr framleiðslunni beint inn í gróðurhús á mun hagstæðara verði en nú þekkist. Með þessu verður úrgangur að orku og næringarefnum sem nýtast aftur til ræktunar.
Ákall um tilraunastöðvar og skýrari stefnu stjórnvalda
Þótt tæknin sé til staðar og tækifærin mikil benda þeir Sveinn og Sigurður á að fjármagn og pólitískan áhuga vanti til að koma lífgasframleiðslu á Íslandi af stað af fullum krafti. Þeir lögðu áherslu á að bændur ættu ekki að bera einir þá áhættu sem fylgir því að stíga þessi nýju skref í orkuskiptunum.
Til að ryðja brautina lögðu þeir til við stjórnvöld að stutt yrði við uppbyggingu á tveimur tilraunastöðvum á bóndabæjum – annarri á Suðurlandi og hinni á Norðurlandi – til að sannreyna tæknina við íslenskar aðstæður. Þá bentu þeir á mikilvægi þess að stjórnvöld endurskoði nýtt kílómetragjald sem hefur skert samkeppnisstöðu innlends lífeldsneytis, en lífgas gæti borið uppi allt að 10% af orkuskiptum Íslands á næstu árum.