Starfsfólk Orkídeu fór nýverið í vettvangsferð að Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, einu stærsta og tæknivæddasta kúabúi landsins. Tilgangur heimsóknarinnar var að kanna og kynna möguleika á uppbyggingu á staðbundnu lífgas- og áburðarveri fyrir ábúendum.
Öflugur sunnlenskur landbúnaður og rekjanleg framleiðsla
Í Gunnbjarnarholti er rekinn metnaðarfullur búskapur þar sem tækninýjungar eru nýttar til fullnustu. Á búinu eru um 500 nautgripir, þar af um 230 mjólkandi kýr sem eru mjólkaðar af fjórum mjaltaþjónum. Arnar Bjarni Eiríksson tók vel á móti starfsfólki Orkídeu og kynnti starfsemina og þá miklu grósku sem þar á sér stað.
Búið byggir fyrst og fremst á mjólkurframleiðslu, en árið 2021 var stigið stórt skref þegar hafin var eigin vinnsla undir vörumerkinu Hreppamjólk. Þar er lögð rík áhersla á gæði og íslenskar mjólkurvörur með skýran og rekjanlegan uppruna.
Hringrás með Value4Farm
Heimsóknin er hluti af víðtækara samstarfi, en hún er liður í þátttöku Orkídeu í Evrópuverkefninu Value4Farm. Verkefnið miðar að því að efla staðbundna orkuvinnslu í landbúnaði sem styður við markmið Orkídeu sem hefur það að leiðarljósi að styðja við verkefni sem auka verðmætasköpun og samkeppnishæfni á Suðurlandi.
Staðbundin lífgas- og áburðarframleiðsla á stóru og framsæknu búi á borð við Gunnbjarnarholt gæti skapað veruleg tækifæri. Með slíkri tækni er hægt að nýta betur þau lífrænu hráefni sem falla til við búreksturinn og stuðla að aukinni hringrás auðlinda og sjálfbærni í landbúnaði.