Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum á Íslandi. Til úthlutunar eru allt að 150 milljónir króna og er umsóknarfrestur til kl. 15:00 þann 9. desember 2026.
Verkefnið er afar mikilvægt skref í að draga úr orkunotkun, auka samkeppnishæfni ylræktar og efla rekstrarhagkvæmni gróðurhúsa, sem mörg hver eru staðsett á Suðurlandi.
Breiðari hópur getur sótt um og nýbyggingar innifaldar
Að þessu sinni er opnað fyrir mun breiðari hóp umsækjenda en áður. Nú geta allir rekstraraðilar gróðurhúsa sem rækta plöntur til sölu sótt um styrk, en áður voru styrkirnir einkum bundnir við beingreiðsluþega vegna raforku til lýsingar. Beingreiðsluþegar munu þó áfram njóta forgangs við úthlutun.
Stór nýjung er jafnframt sú að nú er hægt að sækja um styrk fyrir kaupum á orkusparandi búnaði í nýbyggingum og við stækkanir. Styrkirnir geta meðal annars nýst til kaupa á nýjum LED-ljósabúnaði, tölvu- og stýribúnaði og snjöllum gardínukerfum. Einungis er veittur styrkur til framkvæmda sem ekki eru hafnar.
Áhersla á kostnaðarhagkvæmni
Styrkur getur numið allt að 40% af styrkhæfum kostnaði án virðisaukaskatts, þó að hámarki 20 milljónum króna á hvern umsækjanda. Umsóknir verða metnar sérstaklega út frá kostnaðarhagkvæmni (80%) og gæðum umsóknar (20%), þar sem horft verður til áætlaðs orkusparnaðar miðað við hverja krónu í styrk.
Framtíðarsýn Orkídeu
Hjá Orkídeu fylgjumst við náið með framþróun í orkutengdri nýsköpun og orkuskiptum í matvælaframleiðslu. Þessi styrkur er frábært tækifæri fyrir garðyrkjubændur á Suðurlandi og víðar til að fjárfesta í tækni sem bæði skilar ávinningi fyrir umhverfið og eflir afkomu í rekstri.
Opnað verður fyrir umsóknir 9. nóvember 2026 á vefnum www.orkusjodur.is þar sem jafnframt er að finna allar nánari upplýsingar og kröfur um fylgigögn.
Fyrirspurnum má beina á orkusjodur@uos.is.