Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands fyrir verkefni sem tengjast landshlutanum með skýrum hætti. Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2027 og fer úthlutun fram í sama mánuði.
Sjóðurinn veitir styrki til námsfólks sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Skilyrði er að verkefnið tengist Suðurlandi og þjóni ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta landshlutans.
Helstu upplýsingar um umsóknarferlið
Tækifæri fyrir rannsóknir á sviði nýsköpunar og auðlindanýtingar
Fyrir samstarfsnet Orkídeu, háskólanema, vísindafólk og frumkvöðla á Suðurlandi er sjóðurinn kjörið tækifæri til að styðja við rannsóknarverkefni sem byggja á þekkingu, sjálfbærri nýtingu og tækifærum í landshlutanum. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur á vef Háskólafélags Suðurlands og deila upplýsingum með nemendum og samstarfsfólki.
Nánari upplýsingar um reglur og umsóknir má finna á heimasíðu Háskólafélags Suðurlands eða með því að hafa samband í gegnum netfangið hfsu@hfsu.is.