5. maí 2026

Neikvætt kolefnisspor og meiri kraftur með lífmetandráttarvélum

Orkídea, samstarfsverkefni á Suðurlandi, tekur þátt í evrópska rannsóknarverkefninu Valu4Farm sem miðar að því að draga úr kolefnisspori landbúnaðar með framleiðslu á endurnýjanlegri orku. Á nýafstöðnu vefþingi Orkídeu og Eims um orkuskipti í landbúnaði kynnti Sander Vandendriessche, sérfræðingur hjá belgísku rannsóknarmiðstöðinni InAgro, hvernig nýta má lífmetan sem eldsneyti á dráttarvélar og auka þannig orkusjálfstæði bænda. 

Lífmetan framleitt úr búfjáráburði og afgangsauðlindum 

Aðferðin sem Sander Vandendriessche kynnti byggir á loftfirrðri gerjun þar sem búfjáráburði og öðrum straumum úr landbúnaði er breytt í lífgas. Með því að hreinsa lífgasið yfir í lífmetan (Bio-CNG) fæst hágæða eldsneyti sem nýtt er beint á dráttarvélar. 

Sander Vandendriessche benti á að tæknin væri sérstaklega spennandi fyrir smærri bú þar sem hægt er að hreinsa gasið með líffræðilegum aðferðum á ódýrari hátt en áður hefur þekkst. Dráttarvélar sem ganga á lífmetani hafa auk þess þann kost að vera hljóðlátari og losa 95% minna af svifryki en hefðbundnar dísilvélar. 

Hagkvæmni og orkuöryggi fyrir sunnlenska bændur 

Eitt af lykilatriðunum sem kom fram í erindi Sanders er aukið orkuöryggi. Með því að framleiða eigið eldsneyti verða bændur óháðir sveiflum á alþjóðlegum orkumörkuðum, sem er sérstaklega mikilvægt í ljósi óstöðugleika í heiminum. 

Rannsóknir á lífmetandráttarvélum (m.a. Case New Holland) sýna að þær standa dísilvélum fyllilega á sporði í þungri vinnu, svo sem við jarðvinnslu og flutninga. Þegar unnið er undir miklu álagi geta lífmetanvélar jafnvel reynst skilvirkari en hefðbundnar vélar. Þá getur kolefnisspor framleiðslunnar orðið neikvætt ef nýttur er búfjáráburður sem annars myndi losa gróðurhúsalofttegundir við geymslu. 

Orkídea er brú milli aðila 

Orkídea gegnir mikilvægu hlutverki sem brú á milli rannsóknarvinnu í Evrópu og íslensks veruleika. Með þátttöku í Valu4Farm fær sunnlenskt atvinnulíf og landbúnaður aðgang að nýjustu þekkingu á sviði orkuskipta. Markmið Value4Farm verkefnisins er að gera lífmetan að samkeppnishæfum valkosti sem styður við sjálfbærni og verðmætasköpun á Suðurlandi. 

Sjá má allt erindi Sander Vandendriessche hér 

Fleiri fréttir

Allar fréttir
9. júní 2026
Stuðningsumhverfið á Suðurlandi ber ríkan ávöxt: Livefood stækkar við sig með nýrri vörulínu
Lesa meira
2. júní 2026
Tækifæri í lífgasframleiðslu á Suðurlandi kynnt á vorfundi FENÚR
Lesa meira
1. júní 2026
Starfsfólk Orkídeu sótti grænan innblástur á Suðurnes
Lesa meira
29. maí 2026
Orkídea á mbl.is: „Þetta verkefni skilar tæpum milljarði á Suðurlandi.“
Lesa meira