18. nóvember 2024

Sólsker á Hornafirði reykir makríl og fleira góðgæti

F.v. Helga, Magnús, Ómar og Sveinn

Á ferð Orkídeu um Suðausturland nýlega heimsóttum við Ómar Frans Fransson og fyrirtæki hans Sólsker sem sérhæfir sig í reykingu ýmissa sjávarafurða. Sólsker leggur mikið uppúr nýsköpun í matvælaframleiðslu á staðbundnum fiskafurðum. Fyrirtækið hefur unnið til verðlauna erlendis fyrir reyktan makríl og verðlaun hér innanlands fyrir makrílsmurning (paste). Ómar hefur reykt makríl síðan 2008 en auk makríls reykir hann ýmsar aðrar afurðir t.d. lax, þorskhrogn, síld o.fl.

Sólsker framleiðir sínar afurðir í matarsmiðjunni á Höfn, í húsnæði í eigu Skinney-Þinganes hf. og með tækjum frá Matís ohf. Aðstaðan er búin góðum tækjakosti og uppfyllir öll skilyrði yfirvalda um matvælaframleiðslu. Aðstaðan er opin öðrum frumkvöðlum á svæðinu.

Sólsker hefur fengið ótal viðurkenningar fyrir framleiðslu sína á undanförnum árum.

Fleiri fréttir

Allar fréttir
1. október 2026
Nýta kraft sjávarins: Orkídea kynnir sér nýsköpun Haf-Afls í Vestmannaeyjum
Lesa meira
22. september 2026
Möguleikar á staðbundnu lífgasveri ræddir í Miklaholti
Lesa meira
4. september 2026
Orkídea með tvö erindi á Nordic Biogas Conference
Lesa meira
27. ágúst 2026
Sveinn í viðtali hjá Business Kristinestad: „Vaxandi úrgangur kallar á nýjar lausnir“
Lesa meira