Þriðja árið í röð keyrir Icelandic Startups viðskiptahraðalinn Til sjávar og sveita sem er sérstaklega ætlaður fyrirtækjum í matvælaiðnaði.
Í ár verður hraðallinn keyrður sem sérstakur markaðshraðall að erlendri fyrirmynd og er hann unnin í samstarfi við GAN – Global Accelerator Network.
Fimm fyrirtæki verða valin til þátttöku í hraðlinum sem fer af stað 15. nóvember og keyrir í fjórar vikur. Þátttakendur fá aðgang að sameiginlegri vinnuaðstöðu og njóta leiðsagnar fjölda reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga auk fræðslu og þjálfunar. Viðskiptahraðlar hafa fyrir löngu sýnt sig og sannað í að koma góðri hugmynd í framkvæmd.
Hér má fá nánari upplýsingar og sækja um. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.