1. október 2026

Nýta kraft sjávarins: Orkídea kynnir sér nýsköpun Haf-Afls í Vestmannaeyjum

Helga Gunnlaugsdóttir, rannsóknar- og þróunarstjóri Orkídeu, heimsótti á dögunum nýsköpunarfyrirtækið Haf-Afl ehf. í Vestmannaeyjum. Fyrirtækið vinnur að metnaðarfullri nýsköpun á sviði ölduorku með það að markmiði að tryggja stöðuga raforku og styðja við græn orkuskipti.

Að baki Haf-Afls standa frumkvöðlarnir Dagný Hauksdóttir, Eyrún Stefánsdóttir og Eyvar Örn Geirsson framkvæmdastjóri. Viðfangsefni þeirra er að nýta kraft sjávaraldna við Íslandsstrendur til raforkuframleiðslu. Fyrir samfélög á borð við Vestmannaeyjar skiptir áreiðanleg og stöðug orka sköpum, en með þessu verkefni væri hægt að draga verulega úr þörf fyrir mengandi varaaflstöðvar og efla orkuöryggi á Suðurlandi.

Tækifæri og áskoranir í nýsköpun

Á fundinum áttu þau Helga, Dagný, Eyrún og Eyvar áhugaverðar umræður um þau tækifæri sem felast í nýtingu sjávarorku, en jafnframt var rætt um þær hindranir sem frumkvöðlar mæta á þessu sviði. Þar bar helst á góma skort á skýru laga- og regluverki um nýtingu ölduorku til raforkuframleiðslu, auk áskorana við aðgengi að styrkjum og fjármögnun.

Fyrir Orkídeu eru samtöl sem þessi mikilvæg. Þau veita okkur nauðsynlega innsýn í þær raunverulegu hindranir sem sunnlensk nýsköpunarfyrirtæki þurfa að yfirstíga og hvernig stoðkerfið getur stutt betur við bakið á framsæknum hugmyndum og komið þeim í framkvæmd.

Samstarf sem flýtir fyrir grænni framtíð

Haf-Afl er að meta hvernig tæknin nýtist best við íslenskar aðstæður og vinna að því að undirbúa fyrsta tilrauna- og kynningarverkefnið hér við land. Samhliða standa yfir viðræður við fjárfesta og hagsmunaaðila.

Við hjá Orkídeu þökkum þeim Dagnýju, Eyrúnu og Eyvari kærlega fyrir góðar móttökur til Vestmannaeyja. Það er mikill kraftur í frumkvöðlastarfinu á Suðurlandi og það verður spennandi að fylgjast með framgangi verkefnisins!

Fleiri fréttir

Allar fréttir
1. október 2026
Nýta kraft sjávarins: Orkídea kynnir sér nýsköpun Haf-Afls í Vestmannaeyjum
Lesa meira
22. september 2026
Möguleikar á staðbundnu lífgasveri ræddir í Miklaholti
Lesa meira
4. september 2026
Orkídea með tvö erindi á Nordic Biogas Conference
Lesa meira
27. ágúst 2026
Sveinn í viðtali hjá Business Kristinestad: „Vaxandi úrgangur kallar á nýjar lausnir“
Lesa meira