Fyrsti stefnumótunarfundur Orkídeu var haldinn í fjarfundi 20. janúar síðastliðinn. Að henni koma fulltrúar eigenda Orkídeu í verkefnastjórn þ.e. Þórður Freyr Sigurðsson og Eva Björk Harðardóttir frá SASS, Áshildur Bragadóttir og Daði Már Kristófersson frá Landbúnaðarháskólanum, Dagný Jónsdóttir og Sigurður Markússon frá Landsvirkjun. Sömuleiðis tóku stjórnarmennirnir Bjarni Guðmundsson og Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir þátt auk Sveins og Helgu. Á fyrsta fundinum var lögð áhersla á að ræða framtíðarsýn og gildi, auk þess sem við byrjuðum að ræða hlutverk Orkídeu. Við munum halda áfram með að skilgreina það á næsta stefnumótunarfundi.