28. mars 2022

Dagur atvinnulífsins á Suðurlandi 28. apríl nk.

Dagur atvinnulífsins á Suðurlandi verður haldinn 28.apríl nk. en að deginum stendur sveitarfélagið Árborg í samstarfi við Háskólafélag Suðurlands (HfSu), Atorku og Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA).

Þema ráðstefnunnar er atvinnulífið, nýsköpun og menntun á Suðurlandi þar sem fyrirlesarar koma úr röðum atvinnurekanda, Samtökum atvinnulífsins, Rannís, Fjölbrautarskóla Suðurlands og Háskólafélags Suðurlands. Eftir erindin verður vinnustofa þar sem þátttakendur taka virkan þátt í að móta framtíð sunnlensks atvinnulífs.

Áhugasöm fyrirtæki, félög og stofnanir geta kynnt starfsemi sína í kynningarbásum yfir daginn. Nánari upplýsingar gefur Ólafur Rafnar Ólafsson, atvinnu- og viðburðafulltrúi, olafur.rafnar@arborg.is

Í lok dags verður öllum ráðstefnugestum boðið í móttöku í Skyrlandi sem er ný upplifunarsýning í Mjólkurbúinu í miðbæ Selfoss.

Atvinnulífið á Suðurlandi er öflugt og fjölbreytt. Mætum nýjum tækifærum af krafti og eflum í sameiningu samstöðu atvinnulífsins á Suðurlandi.

Skráning á daginn er hér

Fleiri fréttir

Allar fréttir
16. nóvember 2026
Sunnlensk kvenhetja í landbúnaði: Halla Sif verðlaunuð af Sameinuðu þjóðunum
Lesa meira
10. nóvember 2026
150 milljónir í styrki til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum
Lesa meira
10. nóvember 2026
Fundir fyrir kúabændur í Rangárþingi um lífgas- og áburðarframleiðslu
Lesa meira
4. nóvember 2026
Ný rannsókn Value4Farm sýnir fram á tækifæri fyrir sunnlenskan landbúnað
Lesa meira