9. maí 2025

Gangur í ESB verkefninu okkar Value4Farm

Hráefni mokað inn í lífgasverksmiðju í Danmörku. Mynd: Orkídea

Orkídea er þátttakandi í ESB verkefninu Value4Farm sem er evrópskt samstarfsverkefni, fjármagnað af Horizon Europe áætlun ESB. Tilgangur Value4Farm er að styðja við innleiðingu staðbundinna endurnýjanlegra orkugjafa í landbúnaði og samhliða styðja við aukna sjálfbærni og hagkvæmni í matvælaframleiðslu. Verkefninu var hleypt af stokkunum 1. september 2023 og því lýkur í lok febrúar 2027. ESB leggur mikla áherslu á að verkefni á þeirra vegum séu kynnt og um þau fjallað hvar sem því verður við komið og hafa þátttakendur Value4Farm verið duglegir að kynna verkefnið á fjölmörgum viðburðum og á ýmsum miðlum. Hér teljum við upp viðburði þar sem Value4Farm hefur verið kynnt. Við stiklum á stóru og listinn er langt frá tæmandi. 

Agata Witorizec frá Institute of Soil Science and Plant Cultivation State Research Institute (IUNG) var fulltrúi Value4Farm á ráðstefnu um orku og endurvinnslu lífræns úrgangs, sem haldin var í Zakopane, Póllandi, dagana 11. til 13. mars 2025. Þar kynnti Agata Value4Farm með sérstaka áherslu á þann hluta verkefnisins sem varðar framleiðslu á lífgasi. Alls tóku sóttu ráðstefnuna 184 aðilar og voru 26 fyrirlesarar. Pallborð buðu síðan upp á kraftmikinn vettvang til skoðanaskipta um sjálfbæra starfshætti í líforkuframleiðslu og endurvinnslu úrgangs. Í kynningu sinni deildi Agata hennar sjónarmiðum um meðhöndlun gerjaðs lífmassa og á markmið og framfarir Value4Farm verkefnisins þar að lútandi. 

Vefur https://en.iung.pl/ https://www.wmrconf.org/  

Value4Farm verkefnið varð nýlega hluti af AREA ZERO samstarfsneti  evrópskra rannsóknar og nýsköpunarverkefna sem hafa að markmiði að efla sjálfbæra starfshætti og draga úr notkun á jarðefnaeldsneyti í landbúnaði. Lykilþáttur á þeirri vegferð er að þróa og efla notkun endurnýjanlega orkugjafa eins og lífgas, sólarorku og jarðvarma. Af fjölmörgum áhugaverðum verkefnum má nefna RES4LIVE, sem varðar notkun sólarorku í landbúnaði, HyPErFarm, sem skoðar notkun dróna og skynjara í landbúnaði og Symbiosyst sem rannsakar samlegðaráhrif milli landbúnaðarframleiðslukerfa og sjálfbærrar orkuframleiðslu. Þátttaka Value4Farm í AREA ZERO er dæmi um hvernig þátttaka í ESB verkefnum getur leitt til aukinnar þekkingar og skilnings á tækifærum hvað varðar hagnýtingu nýrrar tækni til að auka skilvirkni, sjálfbærni og verðmæti atvinnuvega. 

Vefur https://areazerocluster.eu/ 

Sem hluti af evrópsku lífmetanvikunni héldu Evrópsku lífgassamtökin (EBA) árlega ráðstefnu sína í Brussel 23.-24. október 2024 með yfir 700 þátttakendum. Þar á meðal var fulltrúi INAGRO sem er virt rannsókna- og ráðgjafarfyrirtæki í Belgíu sem stundar rannsóknir og þróun á sviðum landbúnaðar og ylræktar. INAGRO leiðir jafnframt Value4Farm verkefnið en ráðstefnan var sótt til að afla nýjustu upplýsinga um lífgas- og lífmetanframleiðslu og deila niðurstöðum Value4Farm. Tengingar við virt félög eins og INAGRO eru ómetanlegar þar sem þær veita aðgengi að þekkingu og tengslaneti hvað varðar nýnæmi og nýsköpun í landbúnaði og ylrækt og sér í lagi hvað varðar sjálfbærni og tækniþróun í þeim greinum.  

 Vefur https://www.europeanbiomethaneweek.eu/ https://www.europeanbiogas.eu/  

Eins og áður hefur komið fram lýkur Value4Farm í lok febrúar 2027. Framundan hjá okkur hjá Orkídeu er að kynna áfram fýsileika lífgasframleiðslu á Íslandi og þann margþætta ávinning sem slík framleiðsla getur gefið af sér. Á þeirri vegferð hefur Orkídea nú þegar fengið til liðs við sig framsækna bændur í uppsveitum á Suðurlandi sem gefur verkefninu mikinn meðbyr.  

Af áhugaverðum viðburðum sem framundan eru má helst telja ráðstefnu Orkídeu og systurverkefnisins Eims um lífgas- og áburðarframleiðslu þar sem fjallað verður um möguleika og hindrarnir á þeirri vegferð. Ráðstefnan verður haldinn á Selfossi 5. júní 2025. Dagskrá verður kynnt síðar. 

Sömuleiðis eru uppi áform um frekari kynningar á Suðurlandi í ljósi aukins áhuga bænda á viðfangsefninu. 

Fylgstu með framgangi Value4Farm á vef verkefnisins https://value4farm.eu/, á vef Orkídeu https://orkidea.is/ og á samfélagsmiðlum  

Fleiri fréttir

Allar fréttir
20. maí 2025
Ráðstefna Orkídeu og Eims um lífgas 5. júní
Lesa meira
19. maí 2025
Einar Mäntylä ráðinn til Orkídeu
Lesa meira
9. maí 2025
Gangur í ESB verkefninu okkar Value4Farm
Lesa meira
20. mars 2025
Grein starfsfólks Orkídeu um hringrásargarða birt í Bændablaðinu
Lesa meira