30. maí 2025

Lífgasráðstefnan 5. júní – dagskrá

Orkídea og Eimur, samstarfsverkefni um orkutengda nýsköpun, bjóða til ráðstefnu um lífgas- og áburðarframleiðslu úr hliðarstraumum landbúnaðar. Markmið okkar er að kynna spennandi lífgasverkefni Orkídeu og Eims fyrir hagaðilum, t.d. bændum og samtökum þeirra, stjórnsýslu og ráðuneytum, ráðgjafaþjónustu, fyrirtækjum, fulltrúum sveitarfélaga og almenningi. Jafnframt mæta  erlendir fyrirlesarar og greina frá sinni reynslu af lífgas- og áburðarframleiðslu.

Dagskrá ráðstefnunnar er nú frágengin og má sjá hana hér ofar og hlaða henni niður hér.

Kynnt verða grunnatriði lífgas- og áburðarframleiðslu – hráefni, rekstur, kostir, ávinningur og áhætta sem og skipulag og reynsla nágrannaþjóða af lífgasframleiðslu. Áhersla verður á að kynna ferlið á mannamáli, hvaða möguleika það býður upp á í hringrásarhagkerfinu og til að auka fæðuöryggi á Íslandi.

Staður og tími: Hótel Selfoss, 5. júní kl. 10-15

Aðgangur að ráðstefnunni er öllum heimill og ókeypis, og verður henni einnig streymt. Skráning er nauðsynleg fyrir þátttöku bæði í raunheimum og streymi. Skráning, hvort sem er í stað eða fjar hér

Mötun á hráefni í lífgas- og áburðarver í Danmörku

Fleiri fréttir

Allar fréttir
5. maí 2026
Neikvætt kolefnisspor og meiri kraftur með lífmetandráttarvélum
Lesa meira
27. apríl 2026
18 mánuðir án dísilolíu: „Dráttarvélin gekk alfarið á kúaskít“
Lesa meira
16. apríl 2026
„Hættu að kaupa eldsneyti – byrjaðu að framleiða það“
Lesa meira
14. apríl 2026
Orkuskipti í landbúnaði: Sjálfbærni og ný tækifæri
Lesa meira