17. mars 2021

VAXA – impact nutrition ræktar smáþörunga í Jarðhitagarðinum

VAXA notar LED lýsingu við ræktun smáþörunga

Við heimsóttum VAXA – impact nutrition sem er hátæknifyrirtæki og þróar nýja tækni við ræktun smáþörunga. Fyrirtækið er staðsett í Jarðhitagarði ON við Hellisheiðarvirkjun. Fyrirtækið framleiðir smáþörunga á sjálfbæran hátt og nýtir til þess margar auðlindir frá Hellisheiðarvirkjun t.d. rafmagn, koltvísýring, heitt og kalt vatn. Tæknin sem VAXA notar er þannig klæðskerasniðin fyrir aðstæðurnar í Jarðhitagarði ON. VAXA skilgreinir sig sem hátæknifyrirtæki sem býður lausn við að breyta orku í fæðu með skilvirkari hætti en áður hefur þekkst auk þess sem starfsemin er kolefnisneikvæð, þ.e. umbreytir meiri koltvísýringi í súrefni en fylgir starfseminni. Markmið fyrirtækisins er að framleiða prótein og ómega-3 fitusýrur úr smáþörungum sem nýtast í matvæli og fæðubótarefni. Framleiðslan fer fram í stýrðu umhverfi og býður þannig upp á stöðuga framleiðslu allt árið um kring. 

Fleiri fréttir

Allar fréttir
16. nóvember 2026
Sunnlensk kvenhetja í landbúnaði: Halla Sif verðlaunuð af Sameinuðu þjóðunum
Lesa meira
10. nóvember 2026
150 milljónir í styrki til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum
Lesa meira
10. nóvember 2026
Fundir fyrir kúabændur í Rangárþingi um lífgas- og áburðarframleiðslu
Lesa meira
4. nóvember 2026
Ný rannsókn Value4Farm sýnir fram á tækifæri fyrir sunnlenskan landbúnað
Lesa meira